Berlusconi sakaður um kosningasvindl 24. nóvember 2006 21:24 Berlusconi er sífellt í vandræðum. MYND/Reuters
Ítalskir saksóknarar hafa hafið rannsókn á þeim ásökunum vinstri sinnaðs dagblaðs á Ítalíu að flokkur Silvio Berlusconis, fyrrverandi forsætisráðherra landsins, hafi reynt að hafa rangt við í þingkosningum sem fóru fram í apríl síðastliðnum. Berlusconi neitar öllu og íhugar málsókn. Ásökunin kemur fram í heimildarmynd sem að var gefin með blaðinu í dag. Þar er fullyrt að flokkur Berlusconis hafi breytt auðum seðlum í atkvæði merkt sér. Venjulega eru víst um ein og hálf milljón auðra seðla í kosningum á Ítalíu en þetta árið hafi "eingöngu" verið um hálf milljón seðla sem voru auðir. Blaðamennirnir sem gerðu diskinn vísuðu einnig í fleiri gögn og þar á meðal að útgönguspár höfðu sýnt mun meiri mun á fylgi flokkanna en úrslit kosninganna gáfu til kynna. Gefa þeir í skyn að tölvuforrit hafi verið notað til þess að breyta auðu seðlunum. Flokkur Berlusconis neitar öllu og er sem fyrr sagði að íhuga málsókn. Á sama tíma segja þeir rannsóknina vera af hinu góða þar sem hún muni sýna fram á að þeir hafi ekki haft rangt við í kosningunum. Fréttavefur BBC skýrir frá þessu.
Erlent Fréttir Mest lesið Leigubílstjóri og vinur hans dæmdir fyrir nauðgun Innlent Hafa vísað hundrað leigubílstjórum á brott frá flugstöðinni vegna brota á reglum Innlent „Það er leitt að sjá á eftir góðu baráttufólki“ Innlent Rannsóknaraðgerð lokið en málið enn til rannsóknar Innlent Þrír menn til rannsóknar vegna tveggja hópnauðgana Innlent „Nú hættir þú Sigurður!“ Innlent Kastaði eggjum í bíl Innlent Sérsveitin aðstoðar lögregluna á Suðurlandi Innlent Eva Georgs ráðin dagskrárstjóri sjónvarps hjá RÚV Innlent Þurrt og léttskýjað á sumardaginn fyrsta Innlent Fleiri fréttir Sænskur blaðamaður gæti farið í fangelsi fyrir að móðga Erdogan Vilja ræða frið en ekki uppgjöf Rýna í innyfli deyjandi reikistjörnu Vill enn stærra vopnabúr fyrir næstu stríð Umfangsmesta fölnun kóralrifja sem sögur fara af Óreiðan ræður ríkjum í Pentagon Eigandi Paramount með puttana í umfjöllun 60 mínútna Frjálslyndir með forskot á lokaspretti kosningabaráttunni Úkraínufundinum í London frestað Lík páfans flutt í Péturskirkju í dag Mikil reiði eftir árásina í Kasmír Segir 60 mínútur hafa misst sjálfstæðið og hættir Sagður bjóða frið fyrir formlega eign á Krímskaga Valdatafl í Vatíkaninu: Hver verður næsti páfi? Banað af hákörlum þar sem fólk hefur lengi synt með þeim Á þriðja tug látnir eftir árás á ferðamenn í Kasmír Meirihluti eftirlifenda helfararinnar hverfur næsta áratuginn Harvard stefnir Bandaríkjastjórn vegna þvingunaraðgerða hennar Leyniþjónustustjóri ber Netanjahú þungum sökum Drottningin lögð inn vegna veikinda Eldur í öðrum hreyfli vélar Delta í Flórída Útför páfans á laugardag Greint frá dánarorsök páfans Dánarorsök páfans talin vera heilablóðfall Trump styður Hegseth: Neitar að um trúnaðarbrest hafi verið að ræða Breskir þingmenn leggjast gegn því að Trump ávarpi þingið Skýrslan sé „full af lygum“ Leiðtogar minnast páfans Hvernig er nýr páfi valinn? Loftvarnarsírenur óma á ný eftir skammvinnt „vopnahlé“ Sjá meira