Innlent

Enski boltinn aftur á Sýn

365 hafði betur í keppni við Skjásport í baráttu um sýningarrétt frá ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu tímabilinu 2007 til 2010. Ari Edwald, forstjóri 365, staðfesti þetta við fréttastofu NFS. Skjár einn og Skjásport hafa haft réttinn síðastliðin þrjú ár en þar áður hafði Sýn sýningarréttinn. Ari vildi ekki gefa upp hvers virði samningurinn væri en sagði hann mjög dýran og að Sýn hefði ekki verið þetta kleift án "mjög öflugra bakhjarla sem tryggja áskrifendum Sýnar aðgang að besta sjónvarpsefni í heimi."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×