Innlent

Slagsmál í flugvél

MYND/Valgarður

Slagsmál urðu í flugvél Flugfélags Íslands á leið frá Egilsstöðum í kvöld. Átökin hófust þegar að vélin var í aðflugi. Var árásarmaðurinn tekinn höndum þegar vélin lenti og er maðurinn á slysadeild þar sem hlúð er að sárum hans. Lögreglan lítur málið mjög alvarlegum augum og mun hún yfirheyra árásarmanninn í fyrramálið.

Eins og áður sagði var vélin í aðflugi þegar átökin hófust og þurfti vélin að hætta við lendingu og taka aukahring áður en lent var svo hægt væri að yfirbuga manninn. Búist er við því hann muni gista fangageymslur og talið er að áfengi hafi verið í spilinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×