Menning

Wagner í Háskólabíói

Sinfóníuhljómsveit Íslands flytur í Háskólabíói fimmtudaginn 23. nóvember óperutónlist eftir Richard Wagner ásamt fjórum einsöngvurum og kór. Á efnisskránni eru forleikurinnn að Tristan og Isolde og 3. þáttur óperunnar Parsifal, hins margslungna verks sem var aldarfjórðung í smíðum hjá höfundi.

Það er sannkallaður hvalreki fyrir íslenska óperuunnendur að lokaþáttur þessarar mögnuðu óperu skuli nú heyrast á íslensku tónleikasviði í fyrsta sinn. Ekki síður er það það fagnaðarefni að fá Kristinn Sigmundsson á svið með Sinfóníuhljómsveitinni ásamt þeim Kolbeini Ketilssyni, Wolfgang Schöne og Ruth Marie Nicolay sem hleypur í skarðið fyrir Petru Lang sem forfallaðist. Karlakórinn Fóstbræður og kvenraddir úr Hljómeyki syngja á tónleikunum en kórstjóri er Árni Harðarson. Hljómsveitarstjóri er Johannes Fritzsch.

Parsifal er bæði óvenjuleg og einstaklega áhrifamikil ópera. Í henni blandast kristin trú og goðsagnir við upphafna tónlist sem oft er varla af þessum heimi. Parsifal er ung og saklaus hetja, sá eini sem getur læknað sár Amfortasar, sem gætir kaleiksins sem Kristur drakk af við síðustu kvöldmáltíðina. Með því að afneita sjálfum sér tekst Parsifal að frelsa Amfortas og menn hans undan áhrifum Klingsors hins illa.



Tónleikar hefjast klukkan 19:30, í Háskólabíói, fimmtudaginn 23. nóvember

Hljómsveitarstjóri: Johannes Fritzsch

Einsöngvarar: Wolfgang Schöne, Ruth Marie Nicolay, Kristinn Sigmundsson, Kolbeinn J. Ketilsson

Kór: Karlakórinn Fóstbræður og kvenraddir úr Hljómeyki

Kórstjóri: Árni Harðarson

Richard Wagner: Tristan & Isolde, Prelude & Lieberstod

Richard Wagner: Parsifal 3. þáttur

EFNISSKRÁ:

http://www.sinfonia.is/default.asp?page_id=7169

Æfingar verða í Háskólabíói sem hér segir

Þriðjudagur, kl. 9.30 - 12.45

Miðvikudagur, 9.30 - 12.45

Fimmtudagur, 9.30 - 12.45






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.