Innlent

Rafmagnslaust á Reykjanesi

Rafmagnslaust varð á Reykjanesi eftir að eldingu sló niður í Suðurnesjalínu nú á sjötta tímanum. Rafmagn fór af í byggðum og af báðum virkjununum á Reykjanesi, Reykjanesvirkjun og virkjuninni í Svartsengi. Þær eru nú báðar komnar í gang og rafmagn sömuleiðis aftur komið á í Reykjanesbæ og nágrannabyggðum. Við rafmagsleysið slokknaði meðal annars á ljósastaurum á Reykjanesbraut og hægðist töluvert á umferð á brautinni á meðan á því stóð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×