Erlent

Saklaust fólk drepið

Talið er að tugir óbreyttra borgara hafi fallið í árásum Atlantshafsbandalagsins á bækistöðvar talibana í Suður-Afganistan í vikunni. Talsmenn NATO saka talibana um skýla sér bak við saklaust fólk í bardögum en heimamenn segja þá á bak og burt.

Kandahar-hérað í Suður-Afganistan er eitt af höfuðvígum talibana og því hafa ákafir bardagar geisað þar undanfarnar daga. Í fyrrinótt, á lokadegi föstumánaðarins Ramadan sem er helgur dagur í íslam, vörpuðu herþotur Atlantshafbandalagsins sprengjum á hús á svæðinu en allt bendir að þar hafi einungis hafst við óbreyttir borgarar, konur og börn í meirihluta. Afganska innanríkisráðuneytið segir að í það minnsta fjörtíu hafi látið lífið en öldungar í héraðinu staðhæfa að tvöfalt fleiri hafi látist. Talsmaður alþjóðlega friðargæsluliðsins segir að málið sé í rannsókn og ásakanirnar séu teknar alvarlega.

Breska ríkissútvarpið hefur eftir einum af talsmönnum NATO að talibanar beri sjálfir ábyrgð á mannfallinu þar sem þeir skýli sér í bardögum á bak við saklaust fólk. Það kemur hins vegar ekki heim og saman við framburð heimamanna sem segja talibana á bak og burt úr héraðinu. Harmleikurinn í vikunni sýnir hversu slæmt ástandið í Afganistan er orðið. 3.000 manns hafa látist í átökum í landinu þessa fyrstu tíu mánuði ársins, fleiri en á nokkru öðru ári frá því að ráðist var inn í landið haustið 2001. Til að bæta gráu ofan á svart ríkir mikil reiði á meðal Afgana eftir að þýska blaðið Bild birti í gær myndir af þýskum friðargæsluliðum að leika sér með hauskúpu. Franz Josef Jung, varnarmálaráðherra Þýskalands, greindi frá því í dag að búið væri að bera kennsl á mennina og þeim yrði refsað en hvort það dugar til að draga úr reiðinni á eftir að koma í ljós.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×