Erlent

Spænskum ljósmyndara rænt á Gasaströndinni

Emilio Morenatti, ljósmyndari AP-fréttastofunnar, sem rænt var í Gasaborg í morgun.
Emilio Morenatti, ljósmyndari AP-fréttastofunnar, sem rænt var í Gasaborg í morgun. MYND/AP

Spænskum ljósmyndara sem starfar fyrir AP-fréttastofuna var rænt á Gasaströndinni í morgun. Maðurinn var leið út úr íbúð sinni í Gasaborg þegar byssumenn á hvítum bíl óku upp að honum og þröngvuðu honum inn í bíl sinn.

Ekki er ljóst hverjir voru þarna á ferð eða hvers vegna ljósmyndaranum var rænt en talsmaður ríkisstjórnar Hamas-samtakanna hefur fordæmt mannránið. Yfir 20 erlendum ríkisborgurum hefur verið rænt á Gasaströndinni á síðustu tveimur árum en flestum hefur verið sleppt eftir skamman tíma.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×