Enski boltinn

Ósáttur við færin sem fóru forgörðum

NordicPhotos/GettyImages

Martin Jol þurfti enn að skammast yfir því hvað leikmenn hans fóru illa með færi sín þegar liðið gerði jafntefli við Aston Villa á útivelli í dag.

"Við vorum miklu betri í fyrri hálfleiknum og fengum fjölda færa sem við hefðum átt að nýta. Þetta var mjög erfitt hjá okkur í síðari hálfleik eftir að við urðum einum færri og misstum svo Dawson útaf meiddan, en þessi vítaspyrnudómur var rangur og því hefði Davenport aldrei átt að fá rautt," sagði Jol.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×