Vonsvikinn á viðbrögðum fólks 13. október 2006 15:45 Paul Robinson hefur verið gerður að blóraböggli í ensku pressunni NordicPhotos/GettyImages
Paul Robinson, landsliðsmarkvörður Englendinga, segist afar hissa og vonsvikinn yfir því að hafa verið látinn fá það óþvegið fyrir markið slysalega sem hann fékk á sig á móti Króötum á miðvikudag. "Ég er búinn að skoða þetta atvik margsinnis á myndbandi og þetta var ekkert annað en fáránleg óheppni. Þessu hefur engu að síður verið slegið upp sem mistökum - eins og þetta sé mér að kenna. Mér finnst afar dapurlegt að fólk skuli túlka þetta svona, því ég átti ekki von á því að fá það hrátt í blöðunum eftir þetta atvik," sagði Robinson, en kaldhæðni örlaganna var sú að hann var kosinn maður leiksins eftir að hafa margsinnis varið mjög vel í stórskotahríð Króata. "Markverðir gera mistök eins og aðrir og ég hef áður gert mistök sem hafa kostað mörk - en ekkert á borð við þetta hefur nokkru sinni komið fyrir mig á ferlinum," sagði Robinson. Nokkrir af fyrrum markvörðum enska landsliðsins hafa síðan komið honum til varnar og kalla atvikið ekkert annað en óskiljanlega óheppni - en enska pressan er ekki á sama máli og veltir sér enn upp úr tapinu og reynir að finna sér blóraböggla.
Enski boltinn Erlendar Fótbolti Íþróttir Mest lesið „Hún reif í mig og hraunaði yfir mig, á Marilegan hátt“ Sport Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Íslenski boltinn Ferguson saknar fótboltans Enski boltinn Heimsmeistaranum refsað fyrir notkun blótsyrðis Formúla 1 Þjálfarinn í byrjunarliðinu: „Mér fannst þörf á smá aga í leikinn“ Handbolti Gróðursetja tvö hundruð tré fyrir hvert skorað mark Fótbolti Sjö mörk Jóhönnu hjálpuðu til við að landa fyrsta sigrinum Handbolti Fullkomin byrjun lærisveina Arnórs heldur áfram Handbolti Uppgjörið og viðtöl: Víkingur - Þróttur 1-1 | Eitt stig á hvort lið í fremur rólegum leik Íslenski boltinn Fleiri fréttir Ferguson saknar fótboltans Alisson tæpur fyrir leikinn gegn Bournemouth Segir Arsenal sífellt betra en vill engar ásakanir um sálfræðistríð Alexander-Arnold reynir að kaupa Nantes Með tvær ferðatöskur af fíkniefnum Hafi snúist hugur og vilji nú fara til Liverpool Segir að hann myndi kýla netníðingana í nefið ef þeir stæðu fyrir framan hann Arteta með vondar fréttir af meiðslum Ødegaards Óviss um að hann sé velkominn á Oasis tónleikana Ten Hag rólegur þrátt fyrir fullkomið kvöld Lið Stefáns skoraði úr sextán vítum Auðvelt á Old Trafford gegn C-deildarliðinu Ten Hag aðvarar Antony: „Verður að vinna sér inn réttinn til að spila“ Liverpool birtir áður óséð efni frá Reykjavík: „Beið í sextíu ár eftir því að sjá þetta“ „Þú færð mikið borgað svo þú mátt ekki sýna tilfinningar“ Willum Þór og félagar lögðu Hollywood-lið Wrexham Höjlund enn fjarri góðu gamni en varnarþríeykið klárt í slaginn Englandsmeistarinn Ingle með slitið krossband Fannst mark Gabriels vera ólöglegt Kærir Richarlison og sakar hann um illa meðferð Segist eiga meiri möguleika á að vinna dansþátt en Spurs að vinna titil „Arsenal spilaði eins og meistaralið“ Arteta ánægður með þroskaða frammistöðu í fjarveru lykilmanna Tvö glæsimörk skoruð í endurkomusigri Newcastle Gabriel hetjan hjá vængbrotnu liði Arsenal í nágrannaslagnum Anthony Taylor dómari sló met í gær UEFA hótar því að reka enska landsliðið af þeirra eigin EM Will Ferrell fylgdist með Leeds í fyrsta sinn Enginn varamaður skorað jafn mörg sigurmörk: „Getur orðið einn besti framherji heims“ Aston Villa með ævintýralega endurkomu gegn Everton Sjá meira
Uppgjörið og viðtöl: Víkingur - Þróttur 1-1 | Eitt stig á hvort lið í fremur rólegum leik Íslenski boltinn
Uppgjörið og viðtöl: Víkingur - Þróttur 1-1 | Eitt stig á hvort lið í fremur rólegum leik Íslenski boltinn