Innlent

Níu mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir eignaspjöll

Karlmaður hefur verið dæmdur í níu mánaða fangelsi, sem er skilorðsbundið til þriggja ára, í Héraðsdómi Reykjaness fyrir eignaspjöll. Maðurinn var ákærður fyrir að hafa slegið ítrekað í vélarhlíf og framrúðu leigbíls með þeim afleiðingum að vélarhlífin rispaðist og framrúðan brotnaði.

Ákærði játaði brot sitt skýlaust en hann á að baki nokkurn sakaferil og rauf með brotinu skilorð. Fram kemur í dómnum að ákærði stundi nú vinnu og í ljósi þess að hann lýsti sig reiðubúinn til að bæta fyrir brot sitt var ákveðið að níu mánaða fangelsi, skilorðsbundið til þriggja ára, væri hæfileg refsing.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×