Erlent

700 fluttir á sjúkrahús

Um sjöhundruð lögreglumenn voru fluttir í skyndi á sjúkrahús í suðurhluta Íraks, í dag, eftir að hafa fengið heiftarleg eitrunareinkenni strax að loknum morgunmat. Ekki hefur fengist upplýst hvort einhverjir hafa dáið.

Grunsemdir eru um að eitrað hafi verið fyrir mönnunum. Þeir eru flestir af ættbálki sjía og súnní múslimar hafa gert margar mannskæðar árásir á lögreglumenn, undanfarin misseri. Ekki er vitað til þess að þeir hafi áður notað eitur í árásum sínum, en það þykir frekar ólíklegt að svo margir menn hafi fengið matareitrun samtímis.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×