Erlent

Eitraðan reyk leggur yfir Kolding

Stórum hlutum hafnarbæjarins Kolding, í Danmörku, hefur verið lokað vegna mikils eldsvoða við höfnina. Eitraðan reyk leggur yfir bæinn.

Lögreglan segir að kviknað hafi í sorphaug þar sem bæði séu gaskútar, málningardollur og annar úrgangur sem gefi frá sér hættulega eitraðan reyk. Slökkviliðssveitir úr nágrannabæjum streyma nú til Kolding, til hjálpar.

Kolding er á Jótlandi, skammt frá enda brúarinnar yfir Litlabelti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×