Erlent

Ár liðið frá Kasmír-skjálftanum

Þess er minnst víða um heim að ár er liðið frá jarðskjálftanum mikla í Kasmír sem 75.000 létu lífið í. Pervez Musharraf, forseti Pakistans, lagði blómsveig á minnisvarða um látna í héraðshöfuðborginni Musharraf en hann jafnaðist nánast við jörðu. Uppbygging á hamfarasvæðunum hefur ekki gengið eins hratt og vonast var til, um 400.000 manns eru ennþá heimilislausir og til að bæta gráu ofan á svart hafa ásakanir um spillingu við meðferð gjafafjár orðið æ háværi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×