Erlent

Tóku saklausan borgara af lífi

Bandarískur herlæknir vitnaði fyrir herdómstól í gær hvernig landgönguliðar í herdeild hans tóku íraskan borgara af lífi. Læknirinn sagðist hafa fylgst með þegar Írakinn var numinn á brott af heimili sínu í þorpinu Hamdania í vor, settur ofan í holu í jörðinni og skotinn að minnsta kosti tíu skotum í höfuðið. Að hans sögn frömdu landgönguliðarnir morðið af því að þeim gramdist hversu hægt gekk að hafa upp á uppreisnarmönnum. Læknirinn hafði, ásamt landgönguliðunum, verið dæmdur í tíu ára fangelsi fyrir morðið, en hann fékk dóm sinn mildaðan gegn því að vitna gegn félögum sínum..




Fleiri fréttir

Sjá meira


×