Erlent

Líkir aðgerðum við þjóðernishreinsanir

Gela Bezhuasvhili, utanríkisráðherra Georgíu, segir að framganga Rússa undanfarna daga gegn Georgíu jaðri við þjóðernishreinsanir. 132 Georgíumenn hafa verið reknir frá Rússlandi undanfarna daga og járnbrautar- og póstleiðum á milli landanna hefur verið lokað. Það er sagt koma sér afar illa fyrir fjölda Georgíumanna sem reiða sig á peningasendingar frá ættingjum sínum í Rússlandi. Samskipti landanna hafa sjaldan verið svo slæm en upphaf deilunnar má rekja til þess að georgísk stjórnvöld handtóku fjóra Rússa vegna gruns um njósnir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×