Innlent

Velti tengivagni með bílhræjum á Dynjandisheiði

Bílhræ liggja nú á víð og dreif á kafla á Dynjandisheiði á Vestfjörðum eftir að tengivagn flutningabíls valt þar í dag. Flutningabíllinn var á leið upp á heiðina þegar vagninn valt í beygju með þeim afleiðingum að samanpressuð bílhræ á vagninum flugu út í móa. Engan sakaði í slysinu en nokkrar tafir hafa orðið á umferð á heiðinni vegna þessa og verða áfram. Þar er enn unnið að því að safna hræjunum saman og eru vegfarendur beðnir um að sýna tilltissemi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×