Erlent

Segir Bush hafa tapað hryðjuverkastríðinu

MYND/AP

Bush Bandaríkjaforseta er lyginn og honum hefur mistekist að sigra í stríðinu við al-Qaida. Þetta sagði Ayman al-Zawahri, næst æðsti maður al-Qaida samtakanna í myndbandsupptöku sem birt var í gær.

Á upptökunni segir al-Zawahri að í þessu þriggja og hálfs árs stríði hefðu samtökin styrkst og eflt hugsjón sína. Hann skoraði jafnframt á Bush að vera hreinskilinn við Bandaríkjamenn og játa ósigur sinn í Írak og Afganistan. Al-Zawahri sakaði Benedikt sextánda páfa um að vera sýndarmenni vegna ummæla sinna um Múhameð spámann. Hann hvatti einnig múslima í Darfur-héraðinu í Súdan að segja friðargæsluliðum Sameinuðu þjóðanna í héraðinu stríð á henur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×