Erlent

Útgöngubann í Írak

Hermenn á götum Bagdad
Hermenn á götum Bagdad MYND/AP

Stjórnvöld í Írak hafa ætla að setja á útgöngubann í Bagdad höfuðborg landsins á morgun. Í yfirlýsingu sem Nouri al-Maliki, forsætisráðherra Íraks, gaf út segir að útgöngubannið gildi frá miðnætti til klukkan 18:00 á morgun.

Fólki er gert að halda sig innan dyra og öll umferð á götum borgarinnar er bönnuð. Forsætisráðherrann gaf engar skýringar á útgöngubanninu en bæði bandarískar og íraskar hersveitir hafa lagt aukna áherslu á öryggi í borginni á síðustu viku. Ofbeldi hefur aukist mikið í Bagdad á síðustu vikum en nú stendur yfir Ramadan sem er heilagur mánuður í hinum íslamska heimi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×