Erlent

Óhugnarlegt myndband birt

Hryðjuverkasmatök sem sögð eru tengd al-Kaída birtu í morgun á vef sínum óhugnarlegt myndband sem sýnir illa meðferð á líkum bandarískra hermanna í Írak.

Erfitt er að greina hvaða hermenn þetta eru á myndbandinu en talið er að það séu tveir hermenn sem myrtir voru í júní eftir að þeim var rænt.

Morðin eru sögð framin í hefndarskyni fyrir nauðugn og morð á ungri íraskri konu. Bandarískir hermenn hafa verið ákærðir í því máli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×