Erlent

25 fastir í jarðgöngum

Um 230 slökkviliðs- og byggingaverkamenn reyna nú hvað þeir geta til að bjarga 25 vegavinnumönnum sem sitja fastir eftir að gögn hrundu í suð-vestur Kína í gær. Göngin liggja á fjölfarinni leið millin Guangnan og Yansjan í Yunnan-kantónu.

26 vegavinnumenn sátu upphaflega fastir eftir að göngin hrundu en einum tókst að bjarga sér. Greiðlega hefur gengið að útvega mönnunum mat og drykk í gegnum lítil göt á meðan björgunarmenn reyna að grafa sig til þeirra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×