Erlent

Atlantis skotið á loft

MYND/AP

Geimferjunni Atlantis var skotið á loft frá Canaveral-höfða í Flórída í Bandaríkjunum í dag. Bandaríska geimferðastofnunin, NASA, hafði frestað geimskotinu nokkrum sinnum, nú síðast í gær, meðal annars vegan veðurs.

Geimfararnir um borð eru á leið til alþjóða geimstöðvarinnar til að hafa byggingum hennar áfram og dvelja þar í ellefu dag. Ef ekki hefði tekist að skjóta ferjunni á loft í dag hefði þurft að fresta ferð hennar fram í október þar sem Rúsar ætla að senda Soyuz-geimflaug til geimstöðvarinnar átjánda þessa mánaðar og verður Atlantis-ferjan að vera farin þaðan áður en það gerist.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×