Lífið

Talandi fíll

Fílar hafa hingað til ekki verið þekktir fyrir að tala en þar virðist hafa orðið breyting á ef marka má starfsfólk í skemmtigarði í Jongin í Suður-Kóreu. Kosis, sextán ára gamall fíll, er sagður geta gefið frá sér hljóð sem minni á orð í kóresku.

Þetta gerir hann með því að reka rana sinn upp í sig og blása um leið og hann hristir ranann. Engum sögum fer af því hvort Kosik viti hvað hann er að segja.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×