Erlent

Engin gögn um tengsli milli Saddams og al Kaída

Engin gögn fyrirfinnast sem styðja þær fullyrðingar að tengsl hafi verið á milli Saddams Hússein, fyrrverandi Íraksforseta, og al Kaída hryðjuverkasamtakanna í Írak fyrir upphaf Íraksstríðsins 2003.

Þetta kemur fram í skýrslu bandarísku leyniþjónustunnar, CIA, sem unnin var í fyrra og Öldungadeild Bandaríkjaþings birti í dag. Í aðdraganda Íraksstríðsins hélt Bandaríkjastjórn því fram fullum fetum að tengsl væru á milli forsetans fyrrverandi og samtakanna. Innihald skýrslunnar er sagt mikið áfall fyrir Bush Bandaríkjaforseta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×