Viðtal við Kampusch birt 6. september 2006 23:15
Natascha Kampusch, austurríska stúlkan, sem var í haldi mannræningja í átta ár, eða frá tíu ára aldri, segist einvörðungu hafa hugsað um að flýja á meðan hún var í haldi. Hún hafi einu sinni kastað sér út úr bíl hans á ferð og oft hugsað um að skera af honum höfuðið. Þetta kemur fram í viðtali við austurríska vikuritið News sem kom út í dag. Þar eru birtar nýjar myndir af Natöschu. Nýjar myndir eru einnig birtar með viðtali við hana í dagblaðinu Kronen-Zeitung sem kemur út á morgun. Viðtal við hana var einnig sýnt í austurríska ríkissjónvarpinu, ORF, í kvöld. Þar sagðist hún hafa óttast gíslatökumann sinn, Wolfgang Prikopli, svo mikið að það hafi komið í veg fyrir flestar flóttatilraunir. Hann hafi hótað því að myrða nágranna sína, þá hana og loks svipta sig lífi ef hún reyndi að flýja. Kampusch slapp úr haldi mannræningjans í síðasta mánuði þegar hann leit af henni. Prikopli svipti sig þá lífi og er Kampusch sögð hafa syrgt hann eftir það. Natascha sagðist ítrekað hafa reynt að gefa vegfarendum í skyn með augunum að hún væri í haldi þegar hún og Prikopli fóru út fyrir hússins dyr, enginn hafi hins vegar veitt því athygli.
Erlent Fréttir Mest lesið Musk reynir að hafa áhrif víða: „Ekki fóðra tröllið“ Erlent Heitir því að verða betri eiginmaður og finna sér nýja vinnu Innlent Þrír Kínverjar gripnir í Kongó með tólf gullstangir og gríðarlegar fjárhæðir Erlent The Vivienne er látin Erlent Íslensku þjóðinni ofbjóði ástandið Innlent Mikið álag vegna inflúensu Innlent Hringi viðvörunarbjöllum þegar of auðvelt sé að taka lán Innlent 1166 ára gömul systkini frá Kjóastöðum og öll á lífi Innlent Skyndileg árás Úkraínu hafi komið Rússum í opna skjöldu Erlent Aðstoðar Ingu eftir viðkomu í Sjálfstæðisflokknum, Viðreisn og JP Morgan Innlent Fleiri fréttir Musk reynir að hafa áhrif víða: „Ekki fóðra tröllið“ Þrír Kínverjar gripnir í Kongó með tólf gullstangir og gríðarlegar fjárhæðir The Vivienne er látin Trump ósáttur að flaggað verði í hálfa við innsetninguna Skyndileg árás Úkraínu hafi komið Rússum í opna skjöldu Austurríkiskanslari segir af sér eftir árangurslausar viðræður Í fangelsi fyrir að sofa hjá ári yngri stúlku Höfnuðu skopmynd sem sýndi eigandann í vondu ljósi Fyrrverandi starfsmaður sakar Nicki Minaj um líkamsárás Jimmy Carter kvaddur Einn hinna látnu í New Orleans tengdur konungsfjölskyldunni Látin 116 ára að aldri Dómsuppkvaðning í þöggunarmáli viku fyrir innsetningu „Við getum öll látið fé af hendi rakna“ Johnson endurkjörinn þingforseti með naumum meirihluta Tímabært að Grænland taki skref í átt að sjálfstæði Maður lést í sprengingu um borð í skipi Smyril Line Maduro leggur fé til höfuðs keppinauti sínum Lögreglu tókst ekki að handtaka forsetann afsetta í Suður-Kóreu Skaut sig áður en bíllinn sprakk Talinn hafa staðið einn að verki Hringir Satúrnusar hverfa á þessu ári Birtu óskýra mynd á netinu og leystu eitt elsta mannshvarfsmál Bretlands Varnarmálaráðherrann sem Netanjahú rak hættir á þingi Rannsaka hvort Tesla-sprengingin hafi verið hryðjuverk Fjöldamorðinginn í Svartfjallalandi svipti sig lífi Flutningur á rússnesku gasi um Úkraínu til Evrópu stöðvast að fullu Ellefu særðir eftir skotárás við skemmtistað í New York Tala látinna hækkar í fimmtán Einn lést er Tesla sprakk fyrir utan Trump-hótel Sjá meira