Erlent

Dýnamít í farangrinum

Dýnamít og kveikiþræðir fundust í farangri bandarísks háskólanema sem var á leið með flugvél Continental flugfélagsins frá Argentínu til Texas í gær.

Howard McFarland Fish, sem er 21 árs, var ákærður fyrir að smygla sprengiefni um borð í flugvél og er í haldi yfirvalda í Houston þar sem flugvélinni var lent um leið og dýnamítið uppgötvaðist. Dýnamítíð hefði dugað til að granda flugvélinni.

Fish sagði við yfirheyrslur að hann hefði verið að kanna námavinnslu í Suður Ameríku og tekið sprengiefnið með heim sem minjagripi. Yfirvöld segja ekkert banda til þess að maðurinn tengist hryðjuverkasamtökum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×