Erlent

Lestarslys á Spáni

Mynd/AP
Lest fór af sporinu á Norður-Spáni í gær með þeim afleiðingum að sex manns létust og um sextíu særðust. Slysið átti sér stað í bænum Villada um hundrað og fimmtíu kílómetra norður af Madrid. Ekki er vitað hvað orsakaði slysið. Fjögurhundruð tuttugu og sex farþegar voru um borð í lestinni. Flestir þeirra voru á leið heim eftir að hafa farið í pílagrímsför til borgarinnar Santiago de Compostela á Norð-Vestur Spáni. Aðeins er rúmlega mánuður liðinn síðan fjörutíu og þrír létust í lestarslysi í miðborg Valencia á austur-Spáni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×