Erlent

Elsti maður í heimi

Mynd/AP
Elsti maður í heimi, Rican Emiliano Mercado frá Púertó Ríkó hélt upp á hundraðasta og fimmtánda afmælisdaginn sinn í gær með fjölskyldu sinni. Aldur Mercados hefur verið sannreyndur af heimsmetabók Guinness en hann hefur verið elsti maður heims frá því í janúar 2001. Hann er fæddur 1891 og hefur því verið rétt að verða sex ára þegar elsti núlifandi Íslendingurinn fæddist. Sú heitir Sólveig Pálsdóttir og varð 109 ára á sunnudaginn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×