Erlent

Leyniskyttur fella um 20 pílagríma

Írösk kona syrgir son sinn sem féll fyrir hendi leyniskyttu í Bagdad í dag. Eftirlifandi synir hennar sitja hjá henni.
Írösk kona syrgir son sinn sem féll fyrir hendi leyniskyttu í Bagdad í dag. Eftirlifandi synir hennar sitja hjá henni. MYND/AP

Að minnsta kosti 20 pílagrímar féllu fyrir hendi leyniskyttna í Bagdad, höfuðborg Íraks, í dag. 300 þeirra særðust. Sjíar voru þar á leið að helgidómi til að votta látnum trúarleiðtoga virðingu sína. Öfgamenn úr röðum súnnía eru sagðir standa að baki ódæðunum.

Öryggissveitarmenn voru í viðbragðsstöðu þar sem þúsundir sjía-múslima lögðu leið sína að helgidómi trúarleiðtogans Moussa Kadhim í Kazimiyah, úthverfi Bagdad, höfuðborgar Íraks í dag. Þangað leggja þeir leið sína á ári hverju. Mikil öryggisgæsla var á staðnum og var leitað á öllum við innganginn. Hermenn fylgdust vandlega með hreyfingum á nálægum húsþökum. Bílaumferð var bönnuð í nágrenninu.

Fyrr í dag voru minnst tuttugu pílagrímar felldir í árásum leyniskytta í þremur hverfum súnnía í Bagdad. Hátt í þrjú hundruð særðust.

Lögregla segir að sérstök örugg leið hafi verið mörkuð fyrir pílagrímana að helgidómnum en þar sem svo margir lögðu leið sína þangað reyndu sumir að stytta sér leið og voru þá auðveld skotmörk þeirra öfgamanna sem höfðu komið sér fyrir á húsþökum utan öryggissvæðisins.

Varnarmálaráðherra Íraks segir lögreglu hafa handtekið 30 menn sem grunaðir eru um að hafa skotið á mannfjöldann. 14 lögreglumenn særðust í átökum við þá.

Óttast var, fyrir daginn í dag, að hætta væri á mannskæðum árásum en pílagrímarnir létu það ekki á sig fá og héldu ótrauðir ferð sinni áfram. Atburðir síðasta árs höfðu heldur engin áhrif en þá fórust nærri þúsund pílagrímar í troðningi sem varð þegar það kvisaðist út að sjálfsvígssprengjuárás væri yfirvofandi.

Sjíar trúa því að Súnniar hafi eitrað fyrir Kadhim í fangelsi árið 799 fyrir krist. Kadhim er einn 12 helgra manna Sjía.

Sjíum í Írak var bannað að safnast saman á trúarhátíðum sínum meðan Saddam Hússein var forseti og súnníar voru við völd. Síðan Saddam var komið frá völdum árið 2003 hafa stjórnmálamenn sjía og trúarleiðtogar þeirra hvatt fólk til að fagna trú sinni á götum úti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×