Sport

Gerrard verður á hægri kanti

Steven Gerrard verður á hægri kantinum annað kvöld
Steven Gerrard verður á hægri kantinum annað kvöld

Steve McClaren, landsliðsþjálfari Englendinga, er strax farinn að valda nokkru fjaðrafoki í starfi sínu en hann stýrir enska liðinu í fyrsta sinn í æfingaleik gegn Grikkjum annað kvöld. Leikurinn verður spilaður á Old Trafford í Manchester og verður sýndur beint á Sýn.

McClaren ætlar sér að prófa nýja hluti í leiknum og hefur staðfest að Steven Gerrard muni leika á hægri kantinum í stað David Beckham, sem breskum sérfræðingum þykir bera vitni um að dagar fyrrum fyrirliðans séu taldir hjá enska landsliðinu.

Þá ætlar McClaren að tefla Stewart Downing fram á vinstri kanti, en sá spilaði aðeins 50 mínútur undir Sven-Göran Eriksson á HM. McClaren þekkir vel til Downing eftir að hafa þjálfað hann hjá Middlesbrough um langt skeið. Framherjinn Jermain Defoe verður í fremstu víglínu ásamt Peter Crouch, en Defoe var ekki valinn í HM hóp Englendinga í sumar.

"Ég talaði við Steven Gerrard og honum er alveg sama hvar hann spilar, svo lengi sem hann fær að spila fyrir England," sagði McClaren og bætti því við að hann hefði rætt við Rafa Benitez, stjóra Liverpool, um val sitt. "Gerrard spilaði lengst af á hægri kanti hjá Liverpool á síðustu leiktíð og skoraði þar 23 mörk, svo ég get ekki séð að sé galið að prófa hann þar," sagði McClaren. Hann hefur auk þess ákveðið að gefa Owen Hargreaves tækifæri gegn Grikkjum annað kvöld.



Byrjunarlið Englendinga annað kvöld: Paul Robinson; Gary Neville, Rio Ferdinand, John Terry (fyrirliði), Ashley Cole; Steven Gerrard, Owen Hargreaves, Frank Lampard, Stewart Downing, Jermain Defoe, Peter Crouch.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×