Sport

Steve Staunton ógnað af byssumanni

Steve Staunton var illa brugðið í Dublin í kvöld
Steve Staunton var illa brugðið í Dublin í kvöld NordicPhotos/GettyImages

Steve Staunton, landsliðsþjálfara Íra í knattspyrnu, slapp með skrekkinn í kvöld þegar maður vopnaður byssu vatt sér að honum við hótelið sem írska landsliðið gistir á í Dublin um þessar mundir. Breska sjónvarpið greindi frá þessu nú undir kvöldið.

Staunton er sagður hafa vikið sér frá manninum og náði hann að hafa samband við lögreglu, sem nú hefur mann í haldi sem grunaður er um að hafa verið þarna að verki. Skotvopnið hefur enn ekki fundist, en í tilkynningu frá írska knattspyrnusambandinu kemur fram að Staunton sé óskaddaður eftir atburðinn.

Írska landsliðið var allt statt á hótelinu þar sem það dvelur í undirbúningi sínum fyrir leik gegn Hollendingum á miðvikudag. Svo ótrúlega vill til að þetta er ekki í fyrsta sinn sem uppákoma af þessu tagi á sér stað á þessu sama hóteli, en fyrir tæpum þremur árum skaut maður af haglabyssu inni á herbergi á hótelinu þegar írska landsliðið sat þar að snæðingi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×