Erlent

Yfir tvö hundruð látnir eftir fellibyl í Kína

MYND/AP

Yfir tvö hundruð manns hafa látist í Kína síðustu daga af völdum fellibylsins Saiomai. Fellibylurinn er sá sterkasti sem gengið hefur á land í Kína í hálfa öld og hefur hann eyðilagt tugþúsundir húsa og skemmt uppskeru á stóru svæðu. Flestir hinna látnu eru sjómenn sem ekki komust í land áður en fellibylurinn hóf yfirreið sína úti fyrir ströndum Fujian-héraðs.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×