Erlent

Framtíð friðargæslu á Sri Lanka rædd

MYND/AP

Framtíð friðargæslu á Srí Lanka ræðst á næstu dögum en sendifulltrúi norræna eftirlitsins fundar með fulltrúum stríðandi fylkinga fram eftir vikunni. Tveir hjálparstarfsmenn fundust myrtir í bænum Muttur í morgun.

Fimmtán starfsmenn frönsku hjálparsamtakanna Action Against Hunger fundust myrtir í höfuðstöðvunum í Muttur í gær. Það var svo í morgun sem tveir starfsfélagar þeirra fundust í bíl skammt frá. Þeir höfðu hlotið sömu örlög. Vegsummerki benda til þess að þeir hafi lagt á flótta þegar hinir fimmtán voru myrtir en ekki komist lengra þar sem morðingjarnir hafi elt þá uppi.

Ekki liggur fyrir hvort stjórnarher landsins eða uppreisnarmenn Tamíltígra bera ábyrgð á morðunum og segja liðsmenn stjórnarhersins Tamíltígra seka en því hafna uppreisnarmenn og segja herinn ataðan blóði hjálparstarfsmannanna. Stjórnvöld á Srí Lanka hafa heitið ítarlegri rannsókn á morðunum.

Af þessu má ráða að ástandið á Srí Lanka er afar óstöðugt og hafa uppreisnarmenn og stjórnarhermenn barist í austurhéraðinu Trincomalee síðustu rúma viku. Sérfræðingar segja hættu á allsherjar borgarastyrjöld.

Eftirlit með vopnahléi í landinu hefur verið í höndum norræna friðargæsluliðsins sem í eru um sextíu menn. Þeim fækkar um fjörutíu um næstu mánaðamót þegar Danir, Finna og Svíar hverfa af vettvangi að kröfu Tamíltígra. Eftir eru Íslendingar og Norðmenn og er eftir að ákveða hvort fjölgað verði í hópnum eða þá að önnur þjóð bætist í hópinn með samþykki deiluaðila.

Þorfinnur Ómarsson, talsmaður eftirlitsins, segir framtíð þess ráðast á allra næstu dögum. Jon Hanssen Bauer, sérlegur sendifulltrúi eftirlitsins, fundi nú á Sri Lanka með fulltrúum stríðandi fylkinga. Þar ræði hann átök síðustu dag og vikna og framtíð friðareftirlits. Þorfinnur segir deilendur gefa merki um að þeir vilji halda friðargæsluliði í landinu. Eftir er að ákveða hvernig eftirliti verði hátta og það komi í ljós á næstu dögum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×