Innlent

Tveir teknir eftir líkamsárás

Tveir menn voru handteknir eftir að þeir réðust á þann þriðja í Austurstræti í Reykjavík í nótt. Sá sem ráðist var á slasaðist nokkuð á höfði og var sendur á sjúkrahús en árásarmennirnir í fangaklefa lögreglunnar.

Brotist var inn í stofnun við Suðurlandsbraut laust fyrir klukkan tvö í nótt, tveir menn sem þar voru að verki komust undan en ekki er vitað hvort þeir hafi haft eitthvað upp úr krafsinu. Loks voru sjö stöðvaðir í Reykjavík í nótt við ölvunarakstur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×