Erlent

Næstráðandi í al-Kaída hvetur múslima til að berjast

Ayman al-Zawahri, næstráðandi í al-Kaída hryðjuverkasamtökunum, hvetur múslima til að berjast saman gegn því sem hann kallar krossferð síonista gegn Líbanon, Palestínumönnum og öðrum ríkjum múslima. Þetta kemur fram í myndbandi sem arabíska fréttastöðin Al Jazeera birti fyrir stundu. Í myndbandinu segir hann samtök sín ekki ætla að sitja aðgerðarlaus á meðan Ísraelar geri árásir á Líbanon og Gaza-svæðið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×