Erlent

Blóðbaðið í Írak heldur áfram

Maður syrgir fallinn ástvin í Bagdad í morgun.
Maður syrgir fallinn ástvin í Bagdad í morgun. MYND/AP

Að minnsta kosti tuttugu og fimm manns hafa beðið bana í sprengjuárásum í Bagdad í Írak í morgun. Fjörutíu og fimm liggja sárir eftir árásirnar að sögn Reuters-fréttastofunnar, en AP segir allt upp í 153 hafa særst. Flestir dóu þegar bílsprengja sprakk í miðborg Bagdad. Óttast er að mun fleiri hafi látist því hús sem bifreiðin sem sprakk stóð við er mjög illa farið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×