Erlent

Þúsundir þrömmuðu um götur Kænugarðs

MYND/AP

Þúsundir manna þrömmuðu um götur Kænugarðs, höfuðborgar Úkraínu, í gær til að sýna hugsanlega verðandi forsætisráðherra landsins, Viktor Janúkóvitsj, stuðning. Fylking hans vann flest sæti í þingkosningunum í Úkraínu fyrr á árinu og var Janúkóvitsj í framhaldinu tilnefndur sem næsti forsætisráðherra landsins. Frestur Viktors Júsjenkó forseta, en hann vann Janúkóvitsj í forsetakosningum fyrir tveimur árum, til að samþykkja eða hafna tilnefningunni, rennur út annan ágúst næstkomandi. Forsetinn hefur legið undir miklu ámæli vegna seinagangs við ákvarðanatökuna en hann hefur á móti beðið andstæðinga sína á meðal úkraínsku þjóðarinnar um að virða stjórnarskrárbundinn rétt sinn til að íhuga málið fram yfir mánaðamótin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×