Erlent

Íslendingana sakaði ekki

Rafik Hariri-flugvöllur í Beirút varð fyrir loftárás Bandaríkjamanna.
Rafik Hariri-flugvöllur í Beirút varð fyrir loftárás Bandaríkjamanna. MYND/AP

Átök Ísraelshers og skæruliða Hizbollah-hreyfingarinnar hörðnuðu enn í dag. Fjöldi borgara liggur í valnum eftir árásir síðasta sólarhringinn. Ein af flugvélum Atlanta var á Beirút-flugvelli þegar Ísraelar gerðu loftárás á hann en hún skemmdist ekki. Íslendingar sem fylgja flugvélinni eru sömuleiðis heilir á húfi.

Eftir að skæruliðar Hizbollah-samtakanna tóku tvo ísraelska hermenn í gíslingu á landamærum Ísraels og Líbanon í gær er ástandið fyrir botni Miðjarðarhafs orðið alvarlega en það hefur verið um langt skeið. Í morgun gerði ísraelski flugherinn loftárásir á alþjóðaflugvöllinn í Beirút en stjórnvöld í Jerúsalem segja að um hann séu vopn flutt til Hizbollah. Airbus-þota í eigu flugfélagsins Atlanta var í einu af flugskýlum vallarins í viðhaldi þegar árásin var gerð en hana hefur Air France-flugfélagið á leigu. Þrír íslenskir flugvirkjar fylgja vélinni en til allrar hamingju voru þeir ekki á flugvellinum þegar sprengjunum rigndi þar yfir.

Ekki stendur til í bili að flytja Íslendingana á brott enda er flugvöllurinn lokaður og eins hafa Ísraelar lokað líbönskum höfnum. Í það minnsta 53 borgarar hafa látist í árásum ísraelska hersins á Suður-Líbanon í dag. Líbanska ríkisstjórnin hélt neyðarfund síðdegis og baðst griða.

Ísraelar sjá hins vegar enga ástæðu til að semja frið við líbönsku ríkisstjórnina á meðan skæruliðar Hizbollah, sem að sögn Ísraela eru handbendi Sýrlendinga og Írana, leika lausum hala í suðurhluta landsins. Þeir létu eldflaugum rigna yfir bæi hinum megin landamæranna í dag og dóu að minnsta kosti tvær konur í árásum þeirra. Nú undir kvöld var eldflaugum skotið að ísraelsku hafnarborginni Haifa en Hizbollah segist ekki bera ábyrgð á þeirri árás. Ekki liggur fyrir hvort mannfall hafi orðið í þeirri árás. Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna lýsti í dag yfir áhyggjum sínum af ástandinu á svæðinu og kvaðst mundu senda erindreka sína á vettvang til að miðla málum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×