Sport

Verður Zidane sviptur Gullknettinum?

Zinedine Zidane fær rauða spjaldið í úrslitaleik HM 2006
Zinedine Zidane fær rauða spjaldið í úrslitaleik HM 2006 MYND/AP

Forseti FIFA Sepp Blatter hefur gefið í skyn að Zinedine Zidane gæti verið sviptur Gullknettinum vegna hegðunnar sinnar í úrslitaleik HM. Blatter mun vera að bíða niðurstöðu aganefndar um málið áður en gripið verður til aðgerða.

Blatter sagði við ítalska blaðið La Repubblica: "FIFA ákveður ekki handhafa verðlaunanna heldur alþjóðleg nefnd blaðamanna. FIFA hefur þó rétt og skyldu til að skerast í leikinn þegar hún stendur frammi fyrir hegðun sem stangast á við siðferði íþrótta."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×