Fótbolti

Breskir veðbankar telja John Terry líklegastan

Breskir veðbankar gera nú mikið úr þeirri stöðu að nýr leikmaður taki við fyrirliðabandinu í enska landsliðinu. Veðbankarnir telja mestar líkur á að John Terry, varnarmaður frá Chelsea, verði næsti fyrirliði enska landsliðsins en David Beckham sagði stöðunni lausri á blaðamannafundi í gær.

Veðbankarnir telja líkurnar á að Steven Gerrard verði næsti fyrirliði næst

mestar, síðan Gary Neville og Frank Lampard, jafnir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×