Erlent

Brotnaði í bambusleit

Illa fór fyrir kínverskri risapöndu sem teygði sig aðeins of langt eftir bambus þaðan sem hún hékk uppi í háu tré. Vegfarendur í Shaanxi-héraði í norðvesturhluta landsins fundu dýrið liggjandi meðvitundarlaust á jörðinni og létu þeir flytja það á sjúkrahús í einum grænum. Röntgenmyndir sýndu að pandan hafði brotið mörg bein í fallinu og auk þess hafði hún fengið heilahristing. Hún er nú úr allri hættu og heilsast að sögn lækna ágætlega . Þeir áforma að gera á henni skurðaðgerð eftir nokkra daga og lagfæra þau bein sem brotnuðu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×