Erlent

Berserksgangur í Svíþjóð

Maður í hermannabúningi gekk berserksgang í bænum Täby, skammt norður af Stokkhólmi, snemma í morgun þar sem hann skaut úr sjálfvirkum riffli í gríð og erg. 18 ára stúlka sem átti þar leið hjá fékk í sig skot en hún mun ekki alvarlega slösuð. Maðurinn lagði á flótta en hann fannst svo látinn skammt frá. Riffillinn lá við hlið hans og er því talið að hann hafi framið sjálfsmorð.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×