Sport

Portúgal áfram í 4-liða úrslit

Sabrosa skorar úr vítinu
Sabrosa skorar úr vítinu MYND/AP

Leik Englendinga og Portúgala er lokið eftir markalaust jafntefli, framlengingu og vítaspyrnukeppni. Það voru Portúgalar sem báru sigur úr bítum eftir vítaspyrnukeppnina sem endaði 3-1 fyrir Portúgal. Það gekk ýmislegt á þrátt fyrir markalaust jafntefli. Meðal annars fór David Beckham meiddur af leikvelli og Wayne Rooney fékk umdeilt rautt spjald.

Scolari, þjálfari Portúgal er enn ósigraður á heimsmeistaramóti því Portúgal er komið í undanúrslit á HM eftir að hafa lagt Englendinga í vítakeppni í dag.

Ekkert mark var gert í venjulegum leiktíma þrátt fyrir að Portúgalar léku einum leikmanni fleiri eftir að Rooney var rekinn af leikvelli um miðjan seinni hálfleikinn.

Markalaust var einnig eftir framlenginguna og því þurfti vítaspyrnukeppni til að skera úr um leikinn.

Markvörður Portúgala varði þrjár spyrnur frá Englendingum og það var C.Ronaldo sem tryggði Portúgal sigurinn, 3-1 í fimmtu spyrnu Portúgala.

Það voru Lampard, Gerrard og Carragher sem klikkuðu á vítaspyrnum fyrir Englendinga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×