Viðskipti erlent

Hluthafar styðja yfirtökutilboð Mittal Steel

Stálkóngurinn Lakshmi Mittal, og Joseph Kinsch, stjórnarformaður Arcelor, á sameiginlegum blaðamannafundi í höfuðstöðvum Arcelor í Lúxemborg á mánudag.
Stálkóngurinn Lakshmi Mittal, og Joseph Kinsch, stjórnarformaður Arcelor, á sameiginlegum blaðamannafundi í höfuðstöðvum Arcelor í Lúxemborg á mánudag. Mynd/AFP

Rúmur helmingur hluthafa í evrópska stálframleiðandanum Arcelor var mótfallinn samruna við rússneska stálfyrirtækið Severstal á hluthafafundi fyrirtækisins í dag. Meirihluti hluthafa er hins vegar fylgjandi yfirtökutilboði Mittal Steel í fyrirtækið.

Hluthafar Arcelor sem voru mótfallnir samruna við rússneska keppinautinn eiga 58,94 prósent í fyrirtæki.

Stjórn Severstal hefur lýst yfir að hún fari með málið fyrir dómsstóla.

Fyrsta yfirtökutilboð Mittal Steel, sem er að stærstum hluta í eigu fjölskyldu hins indverskættaða Lakshmi Mittal, eins ríkasta manns sem búsettur er í Bretlandi, og lagt var fram í janúarlok hljóðaði upp á 23,3 milljarða evrur eða 2,230 milljarða krónur. Fyrirtækið hefur tvívegis hækkað yfirtökutilboð sitt og hljóðar nýjasta tilboðið upp á 27 milljarða evrur, jafnvirði tæpra 2.600 milljarða íslenskra króna. Ef af kaupum verður munu fyrirtækin renna saman, heita eftirleiðis Arcelor-Mittal og verða eitt stærsta stálfyrirtæki í heimi.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×