Erlent

Mannræningjar segjast hafa myrt gísla

Einn fjórmenninganna.
Einn fjórmenninganna. MYND/AP

Mannræningjar, sem rændu fjórum starfsmönnum rússneska sendiráðsins í Írak í byrjun mánaðarins, segjast hafa myrt fjórmenningana. Myndband sem birtist á Netinu í gær sýnir einn mann afhöfðaðan og annan skotinn, auk lík hins þriðja.

Fjórði maðurinn er hins vegar hvergi sjáanlegur. Talsmaður rússneskra stjórnvalda segir ekki hafa fengist staðfest hvort mennirnir á myndbandinu séu rússnesku sendiráðsstarfsmennirnir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×