Erlent

Mannfall í Jóhannesarborg

Tólf létust þegar skotbardagi braust út á milli lögreglumanna og búðarræningja í Jóhannesarborg í Suður-Afríku í gær.

Fjórir lögreglumenn voru á meðal þeirra sem féllu í átökunum sem upphófust eftir að hópur manna, um 20 talsins, rændi matvöruverslun í borginni.

Lögregla elti mennina að húsi skammt frá þar sem gripið var til vopna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×