Erlent

Leiðtogar Ísraels og Palestínu fallast í faðma

Mynd/AP

Forsætisráðherra Ísraels Ehud Olmert og forseti Palestínu Mahmoud Abbas féllust í faðma í Jórdaníu í dag en þetta er í fyrsta skipti sem þeir hittast síðan flokkur Olmerts vann þingkosningarnar í mars.Leiðtogarnir taka þátt í tveggja daga ráðstefnu undir heitinu Heimur í hættu en formlegur leiðtogafundur er ráðgerður innan tveggja vikna.

Olmert hefur gefið Palestínumönnum fram til ársloka á næsta ári til að samþykkja friðarsamning, ella muni Ísraelar draga endanleg landamæri milli Ísraels og Palestínu fyrir árið 2010, hvort sem Palestínumenn samþykki þau eður ei.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×