Innlent

Sex fluttir á sjúkrahús eftir árekstur í Keflavík

Sex voru fluttir á sjúkrahúsið í Keflavík til rannsókna eftir harðan þriggja bíla árekstur á gatnamótum Vesturgötu og Hringbrautar í Keflavík í gærkvöldi. Enginn var þó alvarlega slasaður en allir kvörtuðu undan eymslum hér og þar. Bílarnir stórskemmdust og þurfti að fjarlægja tvo þeirra með kranabílum. Talið er að ógætilegur akstur eins ökumannsins hafi valdið árekstrinum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×