Innlent

Ekki ákveðið hvort skipstjóri Sancy verði ákærður

Skýrslutöku af skipstjóranum á færeyska togaranum Sancy, sem tekinn var af varðskipinu Óðni í fyrrinótt, lauk á áttunda tímanum í gærkvöld. Enn hefur ekki verið ákveðið hvort skipstjórinn verði ákærður.

Samkvæmt upplýsingum hjá lögreglunni á Eskifirði er verið að bíða eftir gögnum úr gagnagrunni siglingatölvu sem mun meðal annars upplýsa um siglingaleið togarans. Ekki hefur enn verið ákveðið hvort öll áhöfnin verði yfirheyrð en þó er líklegt að skýrsla verði tekin af stýrimanni togarans í dag. Þá er ekki víst hvenær togaranum verður leyft að halda frá Eskifirði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×