Innlent

Tveggja ára fangelsi fyrir stórfellt smygl

Karlmaður á sextugsaldri var dæmdur í tveggja ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær fyrir að smygla tæpu kílói af amfetamíni og 3,8 kílóum af kannabis til landsins í bíl með Norrænu í desember síðastliðnum. Annar maður flutti bílinn til landsins og áfram til Hafnarfjarðar en lögreglan fann efnin við leit stuttu síðar. Maðurinn játaði að hafa annast innflutninginn en ýmislegt annað í framburði hans þótti ótrúverðugt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×