Viðskipti innlent

Spá 0,8 prósenta hækkun vísitölu

Greiningardeild KB banka spáir 0,8 prósenta hækkun á vísitölu neysluverðs í næsta mánuði og að 12 mánaða verðbólga muni hækka í 7,7 prósent. Í hálf fimm fréttum bankans segir að hækkun á innfluttum varningi og hækkandi húsnæðisverð muni leggja mest til hækkunar á vísitölunni.

Greiningardeildin segir að fasteignaverð hafi hækkað um 1,1 prósent í apríl og hafi fasteignaverð hækkað um 1,6 prósent að meðaltali síðastliðna 3 mánuði. Geri greiningardeildin því ráð fyrir að húsnæðisliðurinn leggi til 0,25-0,30 prósentustig til hækkunar á vísitölunni að þessu sinni.

Þá segir að áhrif gengisveikingar krónunnar hafi komið berlega í ljós í síðustu vísitölumælingu. Hafi verð á innfluttum vörum hækkað um 1 prósent sem hafði 0,15 prósenta áhrif á vísitölu neysluverðs til hækkunar.

Greiningardeild gerir ráð fyrir 2 prósenta hækkun á innfluttum vörum að þessu sinni sem mun hafa um 0,3 prósenta áhrif á vísitölu neysluverðs til hækkunar.

Þá hefur aukið launaskrið hefur leitt til verðskrárhækkana á ýmis konar þjónustu að undanförnu, að mati greiningardeildarinnar. Í síðasta mánuði hækkaði verð á þjónustu um 0,7 prósent sem hafði um 0,15 prósenta áhrif á vísitölu neysluverðs til hækkunar. Greiningardeild gerir ráð fyrir sams konar hækkun á þjónustu í þessum mánuði en á þessum árstíma eru verðskrárhækkanir á veitingahúsum og kaffihúsum algengar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×